Breytt dagsetning á aðalsafnaðarfundi

Breytt dagsetning á aðalsafnaðarfundi

Aðalsafnaðarfundi Þorláks- og Hjallasóknar á árinu 2023 hefur verið frestað vegna körfuboltaleiks Þórs Þorlákshöfn og Vals til miðvikudagsins 3. maí og hefst hann kl. 20:00 í Þorlákskirkju.
Dagskrá fundarins:
1. Setning
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla sóknarnefndarformanns um liðið starfsár
4. Lagðir fram til afgreiðslu ársreikningar sóknar og kirkjugarða fyrir sl. ár ásamt fjárhagsáætlun þessa árs
5. Greint frá starfssemi héraðsnefndar og héraðsfundar
6. Kosningar
7. Önnur mál
Sóknarnefnd Þorláks- og Hjallasóknar