Sjómannadagsmessa verður í Þorlákskirkju sunnudaginn 7. júní kl. 11:00.
Grétar Ingi Erlendsson, formaður bæjarráðs flytur hugvekju.
Kór Þorláks- og Hjallasóknar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista.
Sigríður Munda Jónsdóttir þjónar fyrir altari.
Að lokinni guðsþjónustu verður blómsveigur lagður að minnisvarðanum Lífsfleyi.
Verum öll velkomin til kirkju.
Sóknarnefnd og sóknarprestur







