Fréttir

Hér getur þú fylgst með fréttum og tilkynningum

Aðalsafnaðarfundur Þorláks- og Hjallasóknar

Þorlákskirkju fimmtudaginn 23. maí og hefst hann kl. 20:00.
Dagskrá fundarins:
1. Setning
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Skýrsla sóknarnefndarformanns um liðið
starfsár
4. Lagðir fram til afgreiðslu ársreikningar sóknar og
kirkjugarða fyrir sl. ár ásamt fjárhagsáætlun
þessa árs
5. Greint frá starfssemi héraðsnefndar og
héraðsfundar
6. Kosningar
7. Önnur mál
Kaffiveitingar í safnaðarsal
Verum öll velkomin
Sóknarnefnd Þorláks- og Hjallasóknar

Guðsþjónusta í Strandarkirkju

Sunnudaginn 26. maí kl. 14:00 verður guðsþjónusta í Strandarkirkju.
Kór Þorláks- og Hjallasóknar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista.
Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur þjónar.
Það er gott að koma í kirkju og íhuga, biðja og þakka.
Verum öll velkomin.
Sóknarnefnd og sóknarprestur

Fermingarmessa á hvítasunnudag

Fermingarmessa verður í Þorlákskirkju á hvítasunnudag, 19. maí kl. 13:30.
Ellefu ungmenni munu staðfesta skírnina.
Kór Þorláks- og Hjallakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista.
Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir þjónar.
Verum öll velkomin
Sóknarnefnd og sóknarprestur

Plokkmessa - umhverfismessa í Þorlákskirkju

Sunnudaginn 14. apríl nk. verður plokkmessa - umhverfismessa kl. 11:00 í Þorlákskirkju. Stundin hefst með stuttri helgistund og síðan verður farið út og rusl tínt í nágrenni kirkjunnar. Boðið verður upp á grillaðar pylsur og safa að verki loknu. Hjálpumst að við að fegra umhverfið okkar. Verum öll velkomin ekki síst yngri kynslóðir.
Sóknarnefnd og sóknarprestur
 

Helgihald á páskadag

Fullar hendur af blómum þú hefur.
Hvaða vinur hlýtur þau öll að gjöf?
Út að gröf Jesú gekk ég með blómin,
fann þá tóma gröf, hann lá ekki þar. - Sb. 146
 
Kór Þorláks- og Hjallakirkju syngur við allar guðsþjónusturnar undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista og sóknarprestur þjónar.
Verum velkomin í kirkju á páskadegi

Fermingarmessa á skírdag

Skírdagur 28. mars
Fermingarmessa kl. 13:30. Átta ungmenni munu staðfesta skírnina.
Kór Þorláks- og Hjallakirkju leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Esterar Ólafsdóttur, organista. Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir þjónar.
Verum öll velkomin
Sóknarnefnd og sóknarprestur
logo

Skálholtsbraut, 815 Þorlákshöfn
Opnunartími samkv. samkomulagi
thorlakskirkja@thorlakskirkja.is
S: 483 3616

Nýlegar myndir

Income Tax Planning

    View Service