Frá kirkjugörðunum í Þorlákshöfn og á Hjalla í Ölfusi.
Stjórn kirkjugarðanna býður aðstandendum og forráðamönnum sem eiga leiði í kirkjugörðunum aðstoð, sér að kosnaðarlausu, ef þeir telja þörf á lagfæringum á leiðum.
Efni, t.d. þökur, verður til staðar svo og nauðsynleg verkfæri. Starfsmenn verða til aðstoðar.
Þeir sem ekki hafa tök á að nýta þetta boð er bent á að hægt er að koma óskum um lagfæringar á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Æskilegt er að fá sent á sama tölvupóstfang fyrirspurnir og lýsingu á því hvað þurfi að lagfæra til að tryggt sé að nauðsynlegt efni og áhöld séu til staðar.
Einnig er hægt að hafa samband við Hjörleif, formann sóknarnefndar í síma 893-2017.
Stjórn Þorláks- og Hjallakirkjugarða.
Tökum þátt í stóra plokkdeginum og fegrum bæinn okkar.
Á sunnudaginn verður plokkmessa í Þorlákskirkju og við týnum rusl í kringum kirkjuna, kirkjugarðinn og nánast umhverfi.
Góð samvera og gott tækifæri til að kenna ungu kynslóðinni og hugsa um umhverfið sitt. Á staðnum verða pokar til að týna í og boðið verður upp á pylsur og safa.
Verum öll velkomin







